4enness

03.05.2008 09:30:33 / 4enness

Gangi ykkur vel ;)


Takk kærlega fyrir dimmisionina. Þessi dagur var frábær í alla staði og kvöldið líka! Vallabúningurinn var klárlega sá flottasti og atriðið okkar stóð upp úr, enda erum við svo dugleg og æðisleg. 

Ég vona innilega að þið hafið ekki verið of þunn 1.maí og einnig vona ég að ykkur gangi æðislega vel í prófunum!

Myndir frá dimmisioninu eru að finna á myspaceinu hennar Gullu og Bryndísi. Ég er búin að setja nokkrar á Facebook og svo eru myndirnar frá myndatökumanninum komnar á netið... það eru öruglega fleiri myndir.

http://www.quake.is/myndir/gallery/album99

:)

Sjáumst á lokaballinu eða á útskriftaræfinguna eða bara á útskriftina. 
Á laugardagskvöldinu 24.maí erum við nokkrar búnar að panta Hverfisbarinn. Þar verður frítt áfengi á meðan byrgðir endast. Endilega látið sjá ykkur.. þetta verður svona útskriftarparty fyrir okkur öll! Þetta er eurovisionkvöldið, það er samt ekki enn ákveðið hvort þetta party verður eurovisionparty!

Já, ætli einhver skoði þessa síðu ennþá... annars sendi ég ykkur hlýjar kveðjur

KvElna


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 12:35:24 / 4enness

Dimmisjón Hittingur

Sælt veri fólkið

Ætlaði að henda hérna inn dimmisjón hittingi  í kvöld kl.9 hjá mér, Bryndísi.... ekki Tryggva, veit ekki hvaða misskilningur var þar á ferð ég á heima í leiðhömrum nr. 32
Sjáumst heil ;)

Kv.bryndís

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 08:09:36 / 4enness

Dimmision

Hérna getið þið séð hvaða kennara þið eruð með á dimmision. Endilega reynið að finna út hvaða lag passar vel við þann kennara og líka ef þið eruð með uppástungur af lögum.


Þórður
-6

Anna Jakobína Guðjónsdóttir

Edda Arnaldsdóttir

Sigrún Ívarsdóttir

Sandra Lind Jónsdóttir

Lóa Rún Björnsdóttir

Sigríður Elísabet Árnadóttir

Elva, Ásdís, Diddi – 7

Arndís Ýr Hafþórsdóttir

Bryndís Björk Arnardóttir

Dagný Vilhelmsdóttir

Elna Albrechtsen

Kristín Björg Arnardóttir

Ninna Björg Ólafsdóttir

Steinunn S. Kristjánsdóttir

Ársæll – 7

Snædís Kristmundsdóttir

Sigrún Þormóðsdóttir

Lilja Dögg Jónsdóttir

Klara Bentsdóttir

Helga Aradóttir

Guðlaug Gylfadóttir

Birna Hrund Björnsdóttir

Raggý – 7

Aðalsteinn Tryggvason

Björn Pálmi Pálmason

Ingvar Kristinn Guðmundsson

Már Viðarsson

Máni Cong Van Jósepsson

Viktor Þór Georgsson

Tryggvi Stefánsson



Tónlist…

 Löbbum inn      -              Where´s Waldo

Dönsum              -             

Þórður                 -             

Raggý                   -             

Ársæll                  -             

Svíþjóðgengið  -              Botten anna


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 17:26:54 / 4enness

Peningaplokk..;)

Já.. Peningaplokk og meira peningaplokk

Reikningsnúmerið er

1158-15-200561 og kt. 0112882009

Vinsamlegast leggið inn 11.000 kr fyrir 14. apríl... Þá ætti þetta peningaplokk að vera búið fyrir árið. Þessi 11 þús kall er fyrir búning og dóti sem við gefum kennörum og ýmsu sem mér dettur í hug...;)
Þeir sem þurfa að borga 12.000 eru Viktor, Máni, Bibbi, Dagný, Helga og Sigrún Þormóðs.
Kristín Björg þarf að borga 10.000 því að hún var tvisvar búin að borga :)

Svo er það bara áheitasöfnunin á morgun og málið er dautt..;)

Kv.Bryndís....

P.s. ég heyrði einhversstaðar að við þurfum að vera með atriði á dimmisjón um kvöldið..? einhverjar hugmyndir?

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 17:49:09 / 4enness

Ýmislegt

Jæja krakkar mínir...

Ákvað að skella smá upplýsingum hingað inn ef einhver kíkir ennþá á þessa síðu..;)

En SPRON bakpokarnir komu til mín fyrir páska og eru þeir hérna heima. Á ég ekki bara að geyma þá þangað til á dimmisjón? ég kem með einn til að sýna ykkur á morgun í skúlen.
Saumakonan fann efni, en hún hringdi í mig í dag og sagðist hafa bara fundið eitthvað dúkaefni en ég ætla að skoða það á morgun...

Næsta mál á dagskrá er að fá mál af öllum. Saumakonan sagði að það væri best að við gerðum það sjálf þetta er Brjósamál, mitti og mjaðmamál. þetta þarf að gerast sem fyrst......

Eru ekki annars allri í STUUÐI??

Bryndís

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 17:10:21 / 4enness

=)

Loksins, loksins, loksins tókst okkur að finna búning! Hvar er Valli!!

http://k53.pbase.com/g6/65/575665/2/77982354.e4Qne01D.jpg
Ef þetta kostar of mikið reddum við þessu sjálf.
Bláar buxur, svartir bakpokar (hentugt!), lúðagleraugu, röndótt peysa og dökka skó.
Núna þurfum við bara að semja flott show með dans og skemmtilegheit! Spurning hvaða lag við eigum að hafa? Og einnig hvaða kennara skal fara illa með.

Ahh ég er stórkostlega sátt við þessa hugmynd!


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 21:39:40 / 4enness

Árshátíð!!:D:D

Jább kæri bekkur þetta er ég, Bryndís...

ætlaði að segja hérna að morgunpartýið væri hjá henni Kristínu okkar í Geislalind 13 í Kópavogi.
Vorum við ekki að tala um að mætingin væri um 9-9.30 helst ekki mikið seinna en 9:30..;)

Annars bíð ég spennt eftir þessu, morgunpartýinu sem og árshátíðinni..:;)
Sjáumst eftir c.a.12 tíma..;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 12:26:40 / 4enness

CARE BEARS!!!

Já... Dimmisjón búningurinn er fundinn!!!!

Hvernig lýst ykkur á?

 

  Sjáiði hvað hann er sætur..;) væri reyndar í aaaaaðeins stærri stærðum..;)

 

Þá getur hver og einn ákveðið hvaða lit hann vill vera  og með hvaða mynd og hannað sinn búning sjáfur... eða svona eiginlega... allavega litalega séð.. og svo látum við bara sauma þá..:D:D:D:D


» 17 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 14:10:30 / 4enness

Dimmisjón og fleira!!

Halló Kalló mínir kæru bekkarfélagar...

 Þar sem ég er sem stendur uppdópuð af hitalækkandi og verkjastillandi pillum þá datt mér það í hug að fara að tékka á ýmsu....

Eins og þið vitið þá töluðum við um Dimmisjón í gær og var það mjöööög gaman :)

2 hugmyndir litu dagsins ljós. (ef þið hafið fleiri, sendið linkinn inn og svo kjósum við um þetta við tækifæri í einvherjum af yndislegu tímunum hans Þórðar.)

En þetta voru hugmyndinrar

og

Þetta var bara hesturinn minnir mig... en við myndum splæas líka í skyrtu og hatt ekki satt?

EN á www.alvara.is/buningar  er einhver íslensk búningadótarí... og ég sendi eigandanum meil um hvað búningarnir þar kostuðu og hvort það væri möguleiki að búa til svona tetrisbúninga úr efni og eitthvað... en endilega tékkiði á síðunni (mér fannst stubbabúningarnir snilld!)

En endilega brainstormiði og googlið eins mikið og þið getið því að ef við eigum að standa undir væntingum þá verðum við að vera með GEÐVEIKAN dimmisjón búning! og GEÐVEIKT atriði... Já og með atriðið þá tékkið á http://www.thinkgeek.com/tshirts/science/6e7e/ þetta er frekar fyndinn bolur Pí gert úr aukastöfunum. Datt í hug hvort við gætum gefið annað hvort þróði eða ársæli eða oddi eða einhverjum svona bol... Einnig er til e by numbers og þetta er nördalegt og skemmtilegt eins og við..;)

En já sumir eru ekki ennþá búnir að leggja inná bekkjarreikninginn....

þeir eru í stafrófsröð:

Alli

Anna Jakobína

Bibbi

Dagný,

Helga,

Lilja formaður,

Máni

Sigrún Þormóðs.

Viktor

Endilega hendið inn 1000 krónum sem fyrst... og þá getum við farið að pæla í hvenær þið getið laggt inná bekkarreikninginn aftur..;)

 

En reikningsnúmerið er 

1158-15-200561 og kt. 0112882009

 Ef einhverjar spurningar vakna þá endilega minni ég á komment og verum nú iðin við að kíkja á þessa síðu börnin mín kær...

 Bryndís, "the sick person" kveður

P.s. Kristín: Þú lagðir tvisvar inn 1000 kall svo að ég get annað hvort millifært á þig til baka eða bara að þú borgar 1000 kalli minna næst.. þú ræður.

og Sandra: munt þú dimmitera með okkur?


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.01.2008 00:25:08 / 4enness

Til hamingju með daginn!!

Já hún sandra okkar eiginlega bekkjarsystir er 20 ára í dag (samt eiginlega í gær því það er komið miðnætti...tölvan slow). Hún er fyrst af okkur 88 módelunum að ná þessum merka áfanga og viljum við náttúrulega öll óska henni innilega til hamingju með daginn. Eigðu æðislegan dag....weeee djamm og djús.

 

tequila...uppáhaldsdrykkurinn hennar Söndru!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 20:32:30 / 4enness

Bústaðarferð

Ég er með smá pælingu... hvernig væri að koma með smá pressu á bekkjarformennina okkar um að plana bústaðarferð fyrir okkur. ég væri a.mk. game í einhvað svona á næstunni.+

KV. Alli 


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 12:31:52 / 4enness

Áramót!!!

Jæja minn kæri bekkur

 nú líður að því að árinu er að ljúka og það var bara helv... gott! allavega hjá mér..;)

Ég ætlaði svona að tékka á því hvað þið væruð að fara að gera í kvöld, kvöld flugelda og crazyness??

Sjálf ætla ég að fara á 90's ball á NASA....var að tryggja mér miða á það áðan...

Annars segi ég bara

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!

 og megi næsta ár vera það besta í lífi okkar hingað til!!! 

Já og SKÁL!

Kv.Bryndís Björk Arnardóttir


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 09:51:08 / 4enness

2 ammlisbörn :D:D:D

Já það eru 2 krúsíbollur í bekknum sem eiga afmæli í dag...Sigrún sem er orðin 19 ára og Viktor sem er 20 ára :D Við óskum þeim náttúrulega innilega til hamingju með afmælið og vonum að þau þurfi ekki að læra of mikla eðlisfræði á afmælinu sínu og geti bara notið dagsins :D

um leið og við sendum þeim geðveikar afmæliskveðjur vonumst við aðsjálfsögðu eftir því að þau tilkynni að hey okkur öllum sé boðið í eitthvað geggjað partý til þeirra:D

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 12:10:25 / 4enness

Jólasveinar einn og átta??

Hæ...leiðist er að bíða eftir steinunni þannig að við getum sett upp myndatökuna fyrir ykkur þannig að ég ákvað að koma með smá spurningu hingað :D

Ætlum við að hafa svona jólahitting eins og í fyrra? svona gjafapakkaleikjadóterí hehe eins og í fyrra (gerðum við það ekki annars í fyrra). Þetta var bara svona skemmtileg jólapæling ;)

Annars líka allir að mæta núna á eftir í myndatökurnar ;) rosa mikilvægt því að við erum búnar að fá teiknara (gellurnar sem voru í fyrra) og þær vilja byrja sem fyrst!!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 15:12:36 / 4enness

smá skoðanakönnun!!!

Jæja þá er komið að því, pínu skoðanakönnun, treysti á ykkur krakkar að svara eftir samviskunni... herna kemur hún:

Hvaða týpu af Doritos hugsið þið um þegar þið heyrið "venjulegt Doritos"??

 

svona setjið svar í skoðanir og nafn verður að fylgja með svo við vitum hverjir nota heilann;)

 

Ingvar og Snædís 


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Könnun
Hver er skemmtilegast kennarinn af eftirtöldum?









Myndir